Stundaskrá og skóladagatal er birt með fyrirvara um breytingar. 
Hægt er að kynna sér skilmála vegna skráningar hér
Frístundarúta Árborgar gengur til okkar, hægt er að finna tímatöflu hér

Haustönn 2026 verður tvískipt vegna flutninga. Við byrjum á 6 vikna námskeiðum 31.08-10.10. Hér fyrir neðan má finna áætlaðar dagsetningar fyrir viðburði með miklum fyrirvara um breytingar. Við þurfum að aðlaga okkur að því hvenær framtíðarhúsnæði verður tilbúið og gæti því dagatalið okkar breyst með stuttum fyrirvara.

31.ágúst – Haustönn byrjar
11.október – Fyrri helmingur haustannar klárast
12.-25.október – Frí vegna flutninga (vonandi)
26.október – Áætlað að seinni helmingur haustannar hefjist, 6 vikur. Nemendur eru sjálfkrafa skráðir áfram. Valtímar hefjast að nýju
3.-6.desember – Áætluð opin hús þar sem aðstandendur fá að fylgjast með tíma og smjörþefinn af starfseminni
7.desember-10.janúar – Jólafrí

ATH. TeamDansakademían æfir í jólafríi

11.janúar – Vorönn byrjar
15.-16.febrúar – Vetrarfrí
Febrúar – TeamDansakademían keppir í Borgarleikhúsinu
13.mars – DansManía. Innanhússdanskeppni þar sem nemendur fá tækifæri að keppa sín á milli með frumsamin atriði
20.mars-29.mars – Páskafrí
22.apríl – Sumardagurinn fyrsti
3.-5.maí – Nemendasýningardagar. Samæfingar og óhefðbundin kennsla.
6.maí
– Nemendasýning í Borgarleikhúsinu

ATH. Þessi verðskrá miðast við hefðbundna önn og tekur gildi á vorönn 2026. Á haustönn er aðlagað gjald miðað við tímafjölda.

Valtímar eru viðbót við almennt dansnám.
Frekari upplýsingar um fyrirkomulag og verðskrá fyrir TeamDansakademían má nálgast hér

Skráning er bindandi og námskeiðsgjöld fást ekki endurgreidd.

Ætlast er til að nemandi ljúki önninni sem viðkomandi skráði sig á. Ef að viðkomandi sér sig ekki fært um að klára önnina þá þarf samt að standast greiðslur fyrir önnina sem viðkomandi var skráður á. Takmarkað pláss er í alla hópa og um leið og nemandi skráir sig þá tekur hann pláss af öðrum.

Samskipti við iðkendur og foreldra fara fram í gegnum Abler appinu.
Forráðamenn verða að vera virk á Abler til að nálgast allar upplýsingar um æfingar, forföll og sýningar.

Gjöld í vanskilum geta leitt til að nemandi fái ekki áframhaldandi pláss. 
Öll æfingagjöld sem ekki eru greidd á eindaga fara í innheimtu hjá Mótus. Það gerist sjálfkrafa í Abler greiðslukerfinu.

Veittur er 10% systkinaafsláttur. 
Afsláttur ætti að birtast sjálfkrafa í Abler greiðslukerfinu á seinna systkini. Ef það gerist ekki endilega sendið tölvupóst á dansakademian@dansakademian.is

Hægt er að nýta frístundastyrk upp í greiðslu á æfingagjöldum hjá okkur.
Frístundastyrkurinn er ekki endurgreiddur og ekki möguleiki á að flytja styrkinn á milli systkina.

IMG_5822
Ástrós Guðjónsdóttir
IMG_5800_jpg
Gerður Guðjónsdóttir
IMG_6054
Arna Steinarsdóttir
IMG_5907
Freydís Erla Birkisdóttir
IMG_6385
Maria Araceli
IMG_6031
Áslaug Rún Davíðsdóttir
IMG_6397
Kristín Hanna Guðmunsdóttir
forskráning (1)
Sigrún Ýr Magnúsdóttir
Shopping Cart