Skráning á vorönn

Skráningarferlið:

– Þú skráir nemanda sem nýnema- eða framhaldsnema. Framhaldsnemar eru þeir nemendur sem hafa einhverntímann æft hjá okkur áður en tóku sér pásu sem dæmi. Nýnemar eru þeir nemendur sem hafa aldrei æft hjá okkur áður.
– Ef þú ert með ósk um hóp eða vinaósk þá er velkomið að setja það í athugasemd.
– Ef að nemandi vill einnig skrá sig í valtíma þá biðjum við ykkur um að setja þá valtíma í athugasemd.
– Við finnum viðeigandi hóp fyrir nemanda og höfum samband við fyrsta tækifæri ef að það er laust pláss. Ath. passið að hafa netfang rétt skráð svo hægt sé að ná í ykkur.

Aldursskipting fyrir hópa á vorönn:

– Barnahópar = 5-6 ára
– D-hópar = 7-10 ára
– A-hópar = 11-13 ára
– N-hópar = 14 ára og eldri

Hægt er að kynna sér skilmála vegna skráningar hér

Forskráning hjálpar okkur að sjá hversu margir hafa hug á að stunda dansnám hjá okkur á komandi skólaári og til að getað mannað kennslu í takt við eftirspurn. Takmörkuð pláss eru í forskráningu í hvern aldurshóp en við biðjum alla um að skrá sig á biðlista sem ná ekki plássi í forskráningu og við reynum okkar besta að bæta við hópum. 
Forskráningargjald er 5.000 kr. sem er dregið frá skólagjöldum haustannar.
Einnig verður í boði að forskrá sig í valtíma, gjaldfrjálst, til að tryggja sér pláss.
Forskráningargjaldið fæst ekki endurgreitt.

Hægt er að kynna sér skilmála vegna skráningar hér

Í almennum leiklistartímum leggjum við áherslu á leik- og sköpunargleði. Nemendur notast við ýmsar leiklistaraðferðir og leiki til að þjálfa sjálfstraust, tjáningu, spuna og framkomu. Við viljum kenna nemendum grunnhugtök í leiklist, veita þeim tækifæri til að koma fram og kenna þeim að fá og veita uppbyggilega gagnrýni – en mikilvægast af öllu er að skemmta sér og hafa gaman! Í þessum tímum er ekki er áhersla að læra texta heldur leggjum við upp úr spuna- og sköpunaræfingum og henta tímarnir því öllum óháð því hvort þau vilji koma fram eða ekki. 

Hópar í boði:
7-9 ára: mánudagar kl.16:40-17:40
10-12 ára: miðvikudagar kl.16:40-17:40

Verð fyrir námskeið: 11.900 kr.
Kennari námskeiðisins er Maria Araceli.
Tímar fara fram í Stekkjaskóla.

Það þarf ekki að vera í dansnámi hjá Dansakademíunni til að sækja námskeiðið. Námskeiðið hentar öllum þeim sem hafa áhuga á leikhúsi og leiklist! 

Nemendur Dansakademíunnar sem stunda almennt jazzballettnám fá 20% afslátt af leiklistarnámskeiði. Til að nýta afslátt þarf að senda skilaboð á Gerði í Abler eða tölvupóst á dansakademian@dansakademian.is 

ATH. Söngur og dans 11 ára og eldri eru í 4 söngtímum samhliða danstímum á tímabilinu 17.janúar – 7.febrúar á laugardögum kl.12:15-13:15.
Eftir 7.febrúar eru einungis æfingar á miðvikudögum.

Allir jazzballett-, barna- og söngur og dans hópar sýna á nemendasýningu í Borgarleikhúsinu 2.maí.

Hægt er að kynna sér skilmála vegna skráningar hér

Viðburðir vorannar 2026

12.janúar  – Fyrsti kennsludagur vorannar
31.janúar – Prufur fyrir sýningarleiklist. Upplýsingar koma inn á Abler
23.-24.febrúar – Vetrarfrí
23.febrúar – Team Dansakademían keppir í undankeppni Dance World Cup í Borgarleikhúsinu
21.mars – Dansmanía, innanhúsdanskeppni fyrir nemendur 7 ára og eldri. Upplýsingar koma inn á Abler
30.mars – 6.apríl 
– Páskafrí
23.apríl – Sumardagurinn fyrsti, frí
30.apríl – Eldri hópar á sviðsæfingu í Borgarleikhúsinu
1.maí – Samæfing fyrripart dags hjá öllum nemendum 6 ára og eldri
2.maí – Nemendasýning í Borgarleikhúsinu. Ath. taka allann daginn frá 🙂 

Frekari upplýsingar um fyrirkomulag og verðskrá fyrir TeamDansakademían má nálgast hér

Valtímar eru viðbót við almennt dansnám fyrir þá nemendur sem vilja æfa oftar í viku. Ekki er hægt að æfa einungis í valtímum.
Frekari upplýsingar um fyrirkomulag og verðskrá fyrir TeamDansakademían má nálgast hér

Skráning er bindandi og námskeiðsgjöld fást ekki endurgreidd.

Ætlast er til að nemandi ljúki önninni sem viðkomandi skráði sig á. Ef að viðkomandi sér sig ekki fært um að klára önnina þá þarf samt að standast greiðslur fyrir önnina sem viðkomandi var skráður á. Takmarkað pláss er í alla hópa og um leið og nemandi skráir sig þá tekur hann pláss af öðrum.

Samskipti við iðkendur og foreldra fara fram í gegnum Abler appinu.
Forráðamenn verða að vera virk á Abler til að nálgast allar upplýsingar um æfingar, forföll og sýningar.

Gjöld í vanskilum geta leitt til að nemandi fái ekki áframhaldandi pláss. 
Öll æfingagjöld sem ekki eru greidd á eindaga fara í innheimtu hjá Mótus. Það gerist sjálfkrafa í Abler greiðslukerfinu.

Veittur er 10% systkinaafsláttur. 
Afsláttur ætti að birtast sjálfkrafa í Abler greiðslukerfinu á seinna systkini. Ef það gerist ekki endilega sendið tölvupóst á dansakademian@dansakademian.is

Hægt er að nýta frístundastyrk upp í greiðslu á æfingagjöldum hjá okkur.
Frístundastyrkurinn er ekki endurgreiddur og ekki möguleiki á að flytja styrkinn á milli systkina.

IMG_5822
Ástrós Guðjónsdóttir
IMG_5800_jpg
Gerður Guðjónsdóttir
IMG_6054
Arna Steinarsdóttir
IMG_6385
Maria Araceli
IMG_6397
Kristín Hanna Guðmundsdóttir
IMG_6031
Áslaug Rún Davíðsdóttir
IMG_6410
Jenný Arna Guðjónsdóttir
IMG_6451
Ylfa Sigvaldadóttir
IMG_6443
Bylgja Hrönn Ívarsdóttir
IMG_5907
Freydís Erla Birkisdóttir
febrúar 2026
M Þ M F F L S
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
232425262728  
Shopping Cart