Í júní bjóðum við upp á dans- og leikjanámskeið fyrir 7-9 ára og 10-12 ára

Hvert námskeið er byggt upp eftirfarandi:

– 1×60 mínútna jazzballetttíma
– Stutt pása á milli
– 1×30 mínútna leikjatíma þar sem unnið er með leiklistarleiki í bland við aðra hefðbundnari leiki
– Stutt pása á milli 
– 1×60 mínútna Söngur og dans / Skapandi dans (fer eftir námskeiðum)

Jazzballetttímar
Í jazzballetttímum er dansgleði og skemmtun í fyrirrúmi ásamt ríkri áherslu á jazzballetttækni. Við getum styrktar- og liðleikaæfingar, við lærum að vera partur af hóp og hvetjum hvort annað áfram. Við lærum samsett dansspor sem hjálpa okkur að tengjast takti og tónlist. Í fyrri helming hvers tíma eru gerðar æfingar úti á gólfi og yfir gólf og í seinni helming hvers tíma er kennd dansrútína.

Söngur og dans
Í söng og dans lærum við að syngja saman í hóp og tengja hreyfingar við söng. Notuð eru grunnspor úr jazzballetttækni. Við gerum radd- og leiklistaræfingar sem hjálpa okkur að vera sjálfsörugg bæði í söng og dansi. Þessir tímar eru frábært leið til að kynnast söngleikjum en langflestir dansarar syngja bæði og dansa á sviði!

Skapandi dans
Í skapandi dans gerum við spunaæfingar í gegnum hreyfingu og dans. Við lærum að skapa dansa í litlum hópum og leyfum hugmyndaraflinu að leiða okkur áfram í sköpun. Kennari leggur fyrir hugmynd (orð, mynd, saga) og nemendur gera æfingar og skapa út frá efninu. Í skapandi dansi er ekkert rétt né rangt, einungis góðar hugmyndir sem þróast í enn betri hugmyndir!

Eftirfarandi hópar eru í boði:

7-9 ára

10.-13.júní kl.9:00-12:00 
JAZZBALLETT OG SÖNGUR OG DANS
23.-27.júní kl.9:00-12:00
 JAZZBALLETT OG SKAPANDI DANS

10-12 ára
18.-20.júní kl.10:00-13:00 
JAZZBALLETT OG SÖNGUR OG DANS

Kennarar eru Ástrós og Gerður.

*10% snemmskráningarafsláttur er veittur til 1.maí, vinsamlegast sendið tölvupóst á dansakademian@dansakademian.is með nafn og kt. barns og við göngum frá skráningunni með 10% afslætti

ATH. Ef fullt er í hópa hvetjum við alla áhugasama að skrá sig á biðlista og við munum reyna að bæta við hóp ef nægilegur fjöldi er skráður á biðlista.

*Lágmarksskráning þarf að nást til þess að námskeið fari í gang. Skráning er bindandi og námskeiðsgjöld fást ekki endurgreidd eftir að námskeið er byrjað.*

Hægt er að hafa samband í tölvupósti eða á Facebook síðu skólans ef að þið eruð með einhverjar spurningar, dansakademian@dansakademian.is og www.facebook.com/dansakademian

Fyrir börn á aldrinum 4-13 ára þar sem allir eru velkomnir sama hvort þeir hafi æft dans áður eða ekki!

Kenndur er grunnur í jazzballett-tækni en rík áhersla er lögð á dansgleði og skemmtun.

Eftirfarandi hópar eru í boði:

19.maí – 5.júní

4-5 ára = þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:00-17:40
6-7 ára = þriðjudaga og fimmtudaga kl. 15:50-16:50
8-10 ára = mánudaga og miðvikudaga kl. 17:30-18:30
11-13 ára = þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:45-18:45

ATH. Ef fullt er í hópa hvetjum við alla áhugasama að skrá sig á biðlista og við munum reyna að bæta við hóp ef nægilegur fjöldi er skráður á biðlista.

*Lágmarksskráning þarf að nást til þess að námskeið fari í gang. Skráning er bindandi og námskeiðsgjöld fást ekki endurgreidd eftir að námskeið er byrjað.*

Hægt er að hafa samband í tölvupósti eða á Facebook síðu skólans ef að þið eruð með einhverjar spurningar, dansakademian@dansakademian.is og
www.facebook.com/dansakademian

Shopping Cart