Stundaskrá og skóladagatal er birt með fyrirvara um breytingar.
Um tvö getustig eru að ræða. Annars vegar opið getustig sem er opið öllum óháð bakgrunni og reynslu í dansi og hins vegar framhalds getustig. Þegar skipt er upp í hópa er sérstaklega hugsað um samsetningu hópsins og hvar hver og einn einstaklingur nýtur sín. Kennari getur óskað eftir því að færa nemanda um hóp til að nemandi fái viðeigandi kennslu.
Hægt er að kynna sér skilmála vegna skráningar hér
2.september – Haustönn byrjar
9.september – Valtímar á haustönn byrja, nemendum skólans er velkomið að prófa valtíma fyrstu vikuna
13.október – Inntökuprufur í TeamDansakademían. Fyrir þá nemendur sem vilja keppa á Dance World Cup
16.október – Gistinótt og hópefli eldri nemenda, upplýsingar koma á Abler
17.-20.október – Haustfrí
28.október-3.nóvember – Hrekkjavökuvika þar sem nemendum er velkomið að mæta í búning og við lærum hrollvekjandi dansa
4.-7.desember – Opin hús þar sem aðstandendur fá að fylgjast með tíma og smjörþefinn af starfseminni
9.desember-5.janúar – Jólafrí
ATH. TeamDansakademían æfir í jólafríi
6.janúar – Vorönn byrjar
13.janúar – Valtímar á vorönn byrja, nemendum skólans er velkomið að prófa valtíma fyrstu vikuna
15.-18.febrúar – Haustfrí. TeamDansakademían keppir að öllum líkindum í Borgarleikhúsinu í vetrarfríinu, það á eftir að staðfesta dagsetningu
30.mars – DansManía. Innanhússdanskeppni þar sem nemendur fá tækifæri að keppa sín á milli með frumsamin atriði
12.apríl-21.apríl – Páskafrí
24.apríl – Sumardagurinn fyrsti
1.-4.maí – Fyrirhuguð nemendasýning í Borgarleikhúsinu. Eigum eftir að fá staðfesta dagsetningu
-
Barnadans 35.900 kr.
4-5 ára = 1x 40 mínútur í viku
-
Jazzballett 67.900 kr.
6 ára og eldri = 2x 60 mínútur í viku
-
Leiklist 51.900 kr.
9 ára og eldri = 1x 90 mínútur í viku
-
Söngur og Dans 12.900 kr.
Valtími 7 ára og eldri = 1x 60 mínútur í viku
-
Acro 14.900 kr.
Valtími 10 ára og eldri = 1x 70 mínútur
-
Danstækni 14.900 kr.
Valtími 12 ára og eldri = 1x 70 mínútur
-
Fullorðinstímar 9.500 kr.
20 ára og eldri = 1x70 mínútur í viku. Mánaðaráskrift.
* Frekari upplýsingar um fyrirkomulag og verðskrá fyrir TeamDansakademían má nálgast hér
Skráning er bindandi og námskeiðsgjöld fást ekki endurgreidd.
Ætlast er til að nemandi ljúki önninni sem viðkomandi skráði sig á. Ef að viðkomandi sér sig ekki fært um að klára önnina þá þarf samt að standast greiðslur fyrir önnina sem viðkomandi var skráður á. Takmarkað pláss er í alla hópa og um leið og nemandi skráir sig þá tekur hann pláss af öðrum.
Samskipti við iðkendur og foreldra fara fram í gegnum Abler appinu.
Forráðamenn verða að vera virk á Abler til að nálgast allar upplýsingar um æfingar, forföll og sýningar.
Gjöld í vanskilum geta leitt til að nemandi fái ekki áframhaldandi pláss.
Öll æfingagjöld sem ekki eru greidd á eindaga fara í innheimtu hjá Mótus. Það gerist sjálfkrafa í Abler greiðslukerfinu.
Veittur er 10% systkinaafsláttur.
Afsláttur ætti að birtast sjálfkrafa í Abler greiðslukerfinu á seinna systkini. Ef það gerist ekki endilega sendið tölvupóst á dansakademian@dansakademian.is
Hægt er að nýta frístundastyrk upp í greiðslu á æfingagjöldum hjá okkur.
Frístundastyrkurinn er ekki endurgreiddur og ekki möguleiki á að flytja styrkinn á milli systkina.