N-hópar
Jazzballett fyrir 13-16 ára
N-hópar
Jazzballett fyrir 13-16 ára
Um tímana
Jazzballettnám fyrir 13-16 ára er frábær leið til að efla líkamlegan styrk og liðleika. Æft er í hvetjandi andrúmslofti þar sem hverjum og einum er ýtt áfram í formi hvatningar. Enn meiri áhersla er lögð á jazzballetttækni en hjá yngri nemendum. Erfiðleikastig miðast við getustig hvers hóps að hverju sinni en þannig tryggjum við að kennslan sé persónuleg og einstaklingsmiðuð.
Við teljum einstaklega mikilvægt að efla sjálfstraust hjá unglingum og viljum ýta undir þá tilfinningu að hverjum og einum líði vel í eigin skinni.
Klæðnaður í tímum
- Aðsniðinn æfingafatnaður sem þægilegt er að hreyfa sig í – t.d. leggings, hlýrabolur, stuttbuxur, samfestingur…
- Hægt að vera á sokkunum eða í jazzballettskóm
- Hár tekið snyrtilega frá andliti í teygju
Hópar í boði á haustönn 2023
Hópar í boði á
haustönn 2023
Selfoss
N1 – ungmenni fædd 2010-2007, 13-16 ára
Mánudaga og miðvikudaga kl.17:45-19:00 . Kennari er Ástrós.
Jazzballett 13-15 ára



Eftirfarandi námskeið eru í boði:
13-15 ára framhalds- og nýnemar
16.maí – 17.júní
Tímasetningar: Þriðjudagar kl.16:45-18:00 og fimmtudagar kl.17:15-18:30
Kennari: Gerður
Sumarnámskeið fyrir ungmenni á aldrinum 13-15 ára þar sem allir eru velkomnir sama hvort þeir hafi æft dans áður eða ekki! Í jazzballetttímum er dansgleði og skemmtun í fyrirrúmi ásamt ríkri áherslu á jazzballett tækni. Við æfum í hvetjandi andrúmslofti þar sem hverjum og einum er ýtt áfram í formi hvatningar. Við teljum einstaklega mikilvægt að efla sjálfstraust hjá unglingum og viljum ýta undir þá tilfinningu að hverjum og einum líði vel í eigin skinni. Tímarnir eru 60 mínutur að lengd þar sem stefnt er að efla líkamlegan styrk, jafnvægi og liðleika.
Nánari upplýsingar og skráning hér